Í dag birtist Nýja testamentið úr Heiðnu Biblíunni á Rafbókarvefnum. Eftir að Hið íslenska Biblíufélag neitaði okkur um að fá að nota nýjustu biblíuþýðingarnar ákváðu félagsmenn að hjálpa til við að gefa út biblíutexta sem væri algerlega frjáls. Þess má til gamans geta að Hið íslenska Biblíufélag hefur nú séð að sér og gefið okkur leyfi á að nota þýðingarnar þeirra. Við munum samt sem áður halda áfram að hjálpa til við að koma út Gamla testamentinu.
Hér ber fyrir augu lesenda hinn margumrómaði fjórði árgangur Árbók Vantrúar. Á þessu viðburðarríka ári hófst meðal annars hið alræmda páskabingó Vantrúar. Að sjálfsögðu er öllum alvöru greinum af vefritinu frá ágúst 2006 til og með júlí 2007 safnað saman. Tilkynningum og tilvísunum og öðru slíku dægurefni sem ekki passar í heildarsafnið er sleppt. Að mestu eru greinarnar í tímaröð en greinaflokkum hefur verið safnað saman og birtast í röð.
Árbókin í epub-formi og kindle-formi
Hér ber fyrir augu lesenda hinn margumrómaði þriðji árgangur Árbók Vantrúar. Að sjálfsögðu er öllum alvöru greinum af vefritinu frá ágúst 2005 til og með júlí 2006 safnað saman. Tilkynningum og tilvísunum og öðru slíku dægurefni sem ekki passar í heildarsafnið er sleppt. Að mestu eru greinarnar í tímaröð en greinaflokkum hefur verið safnað saman og birtast í röð.
Árbókin í epub-formi og kindle-formi
Hér er loksins kominn annar árgangurinn af Árbók Vantrúar. Hér er öllum alvöru greinum af vefritinu frá ágúst 2004 til og með júlí 2005 safnað saman. Tilkynningum og tilvísunum og öðru slíku dægurefni sem ekki passar í heildarsafnið er sleppt. Að mestu eru greinarnar í tímaröð en greinaflokkum hefur verið safnað saman og birtast í röð.
Árbókin í epub-formi og kindle-formi
Loksins! Fyrsti árgangurinn af Árbók Vantrúar á rafbókarformi. Hér er öllum alvöru greinum af vefritinu frá ágúst 2003 til og með júlí 2004 safnað saman. Tilkynningum og tilvísunum og öðru slíku dægurefni sem ekki passar í heildarsafnið er sleppt. Að mestu eru greinarnar í tímaröð en greinaflokkum hefur verið safnað saman og birtast í röð. Endurupplifið hinn hráa kraft sem einkenndi Vantrú fyrsta árið.
Árbókin í epub-formi og kindle-formi