Hver og einn á sína heimsmynd, sína mynd af heiminum. Hún er kannski ekki kórrétt, en hún er staðreynd. Fyrr á öldum meðan heimurinn var einfaldur og jörðin flöt og kirkjan eini fjölmiðillinn hefur ein og sama myndin hugsanlega búið í flestum kollum. Bara einhverjir Keplerar og Kópernikusar og Galíleóar sem hugsuðu sitt. Síðan fór sem fór og hin rétttrúaða heimsmynd sem eitt sinn breiddi sig stoltaraleg yfir gervallan heiminn - Í dag er ekkert eftir af henni nema tætlurnar af sprunginni blöðru.
-Pétur Gunnarson Myndin af heiminum. Mál og Menning 2003, bls 51Kirkjan hefur reyndar aldrei haldið því fram að jörðin væri flöt. Það var orðin almennur sannleikur að hún væri hnöttótt umm 600 árum áður enn hún kom til sögunar
Það er rétt. Menntafólk á miðöldum trúði nánast undantekningarlaust á kúlulaga jörð en ekki flata. En kirkjan stóð nú ekki í því að leiðrétta almúgan.
Og bara svona til þess að vera að benda á það þá var það kaþólskur prestur sem fyrstur setti fram mikla hvells kenninguna sem viðurkend er sem vísindaleg staðreynd nú til dags
þá var það kaþólskur prestur sem fyrstur setti fram mikla hvells kenninguna
Eiríkur er hér að vísa til prestins og eðlisfræðingsins Georges Lemaître. Presturinn fékk semsagt ekki vitrun frá Gvuði :-)
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
FellowRanger - 08/05/08 23:20 #
Fallegt og rétt.