Vísindi og nýöld - bólusetningar eða blómadropar
Miðvikudagskvöldið 21. nóvember klukkan 20:00 mun Svanur Sigurbjörnsson læknir halda fyrirlesturinn Vísindi og nýöld –bólusetningar eða blómadropa í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um um bólusetningar og áhrif þeirra. Þá mun hann sérstaklega taka fyrir þá gagnrýni sem fram hefur komið á bólusetningar og tengsl þeirra við alvarlega kvilla, svo sem einhverfu. Áætlaður tími eru 25-30 mín en að honum loknum verður fyrirspurnatími.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Res Extensa, félags um hug, heila og hátterni (www.resextensa.org). Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsalnum (stofu 132) í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, og hefst kl. 20:00, miðvikudaginn 21. nóvember. Allir velkomnir.
Flokkað undir: ( Bólusetningar )
Ragnar - 20/11/07 17:45 #
Stundum er leiðinlegt að vera í námi erlendis. Óska ykkur góðrar skemtunar, ég kem bara næst.