Þegar börn lenda í alvarlegum áföllum eða verða fyrir sálrænu tjóni geta áhrifin í mörgum tilfellum fylgt þeim fram á fullorðinsár. Það var alls ekki algengt fyrir nokkrum áratugum að fólk leitaði til fagaðila, s.s. sálfræðinga, geðlækna eða ámóta, til að fá aðstoð við sín andlegu mein.
Þessir atburðir gætu verið margskonar: Kynferðisleg misnotkun, líkamlegt og/eða andlegt ofbeldi. Í sumum tilfellum þegar einstaklingur verður fyrir kynferðislegri misnotkun í æsku geta verið töluverðar líkur á að hann endurtaki verknaðinn á öðrum og svo koll af kolli. Þetta hefur verið nefnt vampíruáhrifin. Sá sem bitin er af vampíru verður vampíra. En þetta getur einnig átt við hina þættina. Ef barn verður fyrir líkamlegu ofbeldi er ekki ólíklegt að viðkomandi ráðist á sín eigin börn eða önnur seinna lífsævinni.
Ef barn verður fyrir óvæginni og óhugnanlegri lýsingu frá fullorðnum einstaklingi getur það orsakað geðveikislegar ranghugmyndir sem fá að grassera ef ekkert er að gert. Ekki er ólíklegt, ef einstaklingurinn finnur fleiri sem hafa það sammerkt að trúa þessum ranghugmyndum, að hann telji þetta vera sannleikann og fari svo að viðra þessar hugmyndir fyrir ungu og óhörðnuðu fólki, rétt einsog gert var við hann. Og ef sama ranghugmyndin er síendurtekin fyrir framan sama hópinn af ungmennum, er ekki ósennilegt að sú ranghugmynd grafi um sig. Og svo "bíta" þessir krakkar aðra krakka. Þannig getur ranghugmynd haldið lífi í langan tíma, jafnvel 2000 ár.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.