Fyrsta synd mannkynsins var átrúnaðurinn, en efinn er hin fyrsta dyggð.
Höfundur ókunnur
Af hverju ekki? Líturðu ekki á efann sem dyggð?
Ég tel efahyggju sanna tilvist Guðs. Ég er t.d mjög efins að fruma með allri sinni flókindi hafi komið til af tilviljun. Það eru meiri líkur að ég fæ 100000 sexur í teningi í röð. Ef efahyggja sannar tilvist mannsins: Descartés Af hverju getur ekki efahyggja sannað tilvist Guðs. Ég trúi að hún geri það ómeðvitandi kannski.
Það væri gaman að fá að vita hvernig þú færð það út að líkurnar á því að líf hafi orðið til af náttúrulegum ástæðum séu 100000 sexur í teningi í röð.
Málið er síðan að ef teningi er kastað nægilega oft þá mun það að lokum enda á því að þú færð sex 100000 sinnum í röð. Það tekur vissulega langan tíma en það er nægur tími í heiminum.
Ég er t.d mjög efins að fruma með allri sinni flókindi hafi komið til af tilviljun.
Þróun efnisheimins yfir í lífræn efni er ekki eingöngu bundin handahófskenndum tilviljunum, þar kemur fleira til.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
lalli - 26/11/04 06:43 #
hummmm.... ekki alveg sannfærður um að þetta flokkist sem "fleyg orð"