Saga helvítis og presta Þjóðkirkjunnar
Hjalti Rúnar ÓmarssonHelvíti er ein af vandræðalegustu kenningum Þjóðkirkjunnar. Opinberlega játar Þjóðkirkjan að við endurkomu Jesú muni hann dæma "guðlausa menn og djöflana" til "eilífra kvala".
Helvíti veldur Þjóðkirkjunni og prestum hennar endalausum vandræðum, þar sem þetta er frekar ógeðfelld kenning og prestar sem gagnrýna helvíti tala gegn játningu Þjóðkirkjunnar meðan þeir sem boða helvíti hrekja fólk frá Þjóðkirkjunni. Niðurstaðan er að prestar tjá sig nánast ekkert um helvíti, og þeir sem gera það geta átt von á veseni, eins og sagan sýnir.